Ársskýrsla Innsýnar, fagdeild hjúkrunarfræðinga starfandi við lungna - og meltingarfærarannsóknir. starfsárið mars - apríl 2025-2026 Félagafjöldi: 40 Stjórn fagdeildar á starfsárinu: Formaður: Margrét Marín Arnardóttir. Gjaldkeri: Elín Hilmarsdóttir. Ritari: Hulda Björk Jóhannsdóttir. Meðstjórnendur: Björg Guðmundsdóttir, Rebekka Örvar og Ragnhildur Björk Karlsdóttir Stjórn fagdeildar á næsta starfsári (ný stjórn ef um breytingar er að ræða): Ragnhildur Björk Karlsdóttir bættist við stjórnina sem meðstjórnandi. Félagsgjald: 3000 kr Stjórnarfundir: 4 formlegir fundir og síðan töluvert af umræðum á netspjalli. Innlend starfsemi: Aðalfundur Innsýnar var frestað fram á vetur og sameina aðalfund og fræðsludag félagsins. með það í huga að ná til flestra félagsmanna og auðvelda þannig ákvarðanatöku og stjórnarkjör. Fræðsludagur Innsýnar var haldinn þann 7.nóvember 2025 og mættu 39 manns. Haldnir voru 4 stjórnarfundir á starfsárinu og einnig voru töluverð samskipti á netspjalli hópsins varðandi ákvarðanatökur fyrir Fræðsludag Innsýnar og Tveir stjórnarmeðlimir gáfu kost á sér áfram í stjórnarsetu og varð það samþykkt einróma, þær eru Elín Hilmarsdóttir gjaldkeri og Hulda Björk Jóhannsdóttir ritari. Stungið var upp á að bæta sjötta meðlim í stjórnina frá annarri stöð en LSH og Miðstöð Meltingar og bauð Ragnhildur Björk Karlsdóttir frá Meltingarsetrinu sig fram og var samþykkt. Lögð var fram breytingatillaga þess efnis að hækka árgjald félagsins úr 3000kr í 4000kr og var það samþykkt. Önnur tillaga var þess efnis að leggja niður námssjóð Innsýnar þar sem engin hefur sótt um hann undarfarin ár. Sú tillaga var samþykkt. Báðar breytingatillögunar taka gildi 1.janúar 2026. Fræðsludag Innsýnar sem haldinn var þann 7.nóvember 2025 og tókst hann með eindæmum vel. Boðið var upp á samlokur, góðgæti og óáfenga drykki. Dagurinn byrjaði á aðalfundi Innsýnar og aldrei verið fleiri félagsmenn á aðalfundi Innsýnar. Við munum halda áfram á þessum nótum. Innsýn heldur úti Facebook síðu þar sem auglýst er þeir fyrirlestrar sem fyrirhugaðir eru, hittingur og því sem viðkemur Innsýnarfélögum. Á vegum ESGENA (Evrópusamtök meltingar - og speglunar hjúkrunarfræðinga) hafa verið haldnir 13 veffræðslur (webinar) okkur að kostnaðarlausu. Þetta hafa verið mjög fróðlegir fyrirlestrar bæði frá meltingar/speglunar hjúkrunarfræðingum og meltingarlæknum. 12.mars 2026 bauð Miðstöð Meltingar félagsmönnum að koma og kynna sér starfsemi og húsnæði staðarins. Vel var mætt og margar hugmyndir voru fengnar frá þessari heimsökn. FÍH styrkti Innsýn um 350.000kr.vegna kostnaðar við veitingar, fyrirlesara og uppistand á Fræðsludegi Innsýnar. Erlent samstarf Evrópskt samstarf: Innsýn er active member í ESGENA European Society of Gastroenterology and Endoscopy Nurses Associates. ESGENA working group þar sem við eigum einn fulltrúa, en það er vinnunefnd sem samræmir sérhæfingu í speglunarhjúkrun í Evrópu og hefur unnið að gerð sameiginlegra verklagsreglna í ýmsu er lýtur að speglun og speglunarhjúkrun. Fundur hjá nefndinni eru tvisvar á ári og er Margrét Marín Arnardóttir tengiliður við ESGENA.Frá ESGENA fáum við reglulega fréttabréf, ESGENA enews, og hefur verið í hverjum mánuði síðasta ár, fræðsla á vefnum (visual). 28.apríl 2026, Margrét Marín Arnardóttir formaður.